Mánuði síðar….
Mikið erum við glöð að eiga heima á Íslandi. Stundum þarf maður að fara í burtu til að sjá hvað maður hefur. Annars höfum við haft nóg að gera eftir heimkomuna, reyndar svo mikið að við höfum ekki séð okkur fært að koma skikk á myndirnar úr ferðinni, uppfæra síðuna eða setja inn eina einustu frétt.
Þessi dagskrá er þó að mestu heimatilbúin og maður verður bara að takast á við hana á með bros á vör. Það er nægur tími til stefnu, bara spurning um að nýta hann rétt.
Flóki varð fjögurra ára um daginn, til hamingju kúturinn minn.
Er bloggið ykkar dáið?
En bara svona fyrir forvitnis sakir, eruð þið enn glöð að eiga heima á Íslandi???
Sænskar kjötbollukveðjur frá Stálmúsinni!