Við erum á leiðinni heim

March 29th, 2008 by webmaster

Eftir 62 daga ferðalag, 20 hótelgistingar, 12 flugferðir og ótal klukkutíma í lestum, bílum og bátum þá erum við á leiðinni heim. Það verður gott að komast í Þúfubarðið og þurfa ekki að pakka aftur niður eftir 2-3 daga eins og við höfum verið að gera undanfarnar vikur. Síðasti viðkomustaður okkar er hérna í Hong Kong þar sem Flóki hitti loksins frændsystkyni sín, Coco og Magnus sem búa hér í borginni, en það er hann Þröstur, bróðir hennar Rakel sem á þau með konu sinni Sandy. Hong Kong er þéttbýlasta borg í heimi og háhýsin eru í ótrúlegu magni enda landnæði mjög takmarkað. Hér býr fólk mjög þröngt og 60 fm íbúð telst til mjög stórra íbúða og þar búa aðeins þeir sem eru með stærstu fjölskyldurnar. Fasteignaverð er í samræmi við þettbýlið og fermetrinn í góðu háhýsi fer á 1 – 2 milljónir.

Við hófum Hong Kong túrinn með 3ja nátta stoppi á Disneyland hótelinu sem var hrikalega flott og þar hitti Flóki Mikka mús, Guffa, Andrés önd og fullt af öðrum fígúrum. Disneygarðinn var æðislegur og Flóki skemmti sér konunglega í hinum ýmsu tækjum og skemmtiatriðum sem voru í boði. Okkur Rakel fannst þetta frábært en við skemmtum okkur samt betur þegur við skruppum í spilavítin í Macao og Flóki var í pössun hjá barnfóstrunum Lani og Jani sem sjá um Coco og Magnus. Flóki var samt svoldið frústreraður þegar við sóttum hann eftir 10 tíma pössun í enskumælandi umhverfi. Spilavítið sem við fórum í var Kínverska útgáfan af Venetian Casino sem er nákvæmlega eins og það sem er í Las Vegas nema stærra og flottara, þetta er svona staður sem þú getur verið á í viku og aldrei farið útaf hótelinu. Við förum þangað næst :)

 Takk kærlega fyrir allar kveðjurnar og við sjáumst í næstu viku


5 Responses to “Við erum á leiðinni heim”

  1. Linda og Peter

    Góða ferð heim elskurnar okkar. Hlökkum til að heyra í ykkur og sjá fleiri myndir.
    Gangi ykkur vel í að komast niður á jörðina, í rétta tímastemmningu og að fara í vinnuna.
    hringjumst á í vikunni.
    Knus
    Linda og Peter.

  2. Íris Heiður

    Góða ferð heim! Kannski við kíkjum í kaffi um helgina ef þið verðið búin að ná ykkur niður eftir þetta allt saman, en við skötuhjúin verðum í “brúðkaupsundirbúningshelgarferð”. En heima er best, það er sem betur fer alltaf þannig!! ;)

  3. Erum svolítið á eftir hérna í Danmörkinni svo við höfum ekki alveg staðið okkur í að fylgjast með ferðinni, en ég er þó búin að lesa nokkur blögg og dáist bara að ykkur að drífa ykkur í þessa ferð og taka Flóka ferðaklóka með. Linda var þó búin að segja okkur nokkrar skemmtilegar sögur. En allavega velkomin heim (ef þið eruð komin á Klakann) og kærar kveðjur frá familien í Hosens.

  4. Anna Svava

    Ég sá Pandabjörn og humar. Fórum á pitzustað á Íslandi og líka að fór á ströndina í Maiami. Fór líka í bío með Önnu Svövu og mér fannst allt skemmtilegasta myndin, en skrýtið þegar konunni var ýtt þegar hún var að æfa. Erum að fara út að labba.

    Hér fékk Flóki að ráða hvað ég skrifaði, við biðjum að heilsa.
    Anna Svava og Flóki

  5. Hey worldtravellers! :)

    I can’t understand anything what is written in the blog but we’re glad we can see the pictures in your ‘gallerý’ ;)

    Our pictures of Costa Rica are also online, you can find it on our website if you like. (www.dewaart.eu)

    Greetings from Holland!
    Reanne & Marc

Leave a Response