Allt klikkað í Kína

March 20th, 2008 by webmaster

Eða svona hér um bil. Komumst að því í fyrradag að við erum að ferðast hérna á vegum ríkisins, en ferðaskrifstofan, öll hótel og allir viðkomustaðir sem við erum að fara á eru reknir af Kínverska ríkinu. Annars er búið að vera frábært að komast í þennan hóp Íslendinga sem hér er á ferð. Það kom okkur svo skemmtilega á óvart að þegar við fórum í morgunmat fyrsta daginn í hópferðinni að hálf föðurættin hennar Rakel ( Jóa megin ) er líka í ferðinni. Við hittum hópinn í Peking þann 15 mars og kveðjum þau í Guilin laugardaginn 22 mars en þá höldum við til Hong Kong. Undanfarna daga höfum við farið á helstu ferðamannastaði í Peking og Xian, t.d. Forboðnu Borgina, Torg hins Himneska Friðar, Kínamúrinn og svo leirhermennina. Þessir tveir síðastnefndu staðir voru langflottastir og þvílík upplifun að ganga á múrnum, það er eitthvað sem maður gleymir seint. Í gær skoðuðum við leirhermennina ( terracotta warriors ) sem einhver keisarinn lét búa til til að gæta sín í framhaldslífi sínu ( sami keisari og lét rigga upp Kínamúrnum ). Maður er nú ekkert alveg að átta sig á því hvernig þetta var að funkera hérna fyrir 2200 árum, það voru ekki nema 720000 manns í því að útbúa þennan grafreit sem þekur 56 ferkílómetra lands. Svo fyrirskipaði hann að salla niður meirihlutann af þessum vinnumönnum þar sem þeir vissu um alla fjarsjóðina og leynigöngin í grafreitnum. Leirhermennirnir fundust þó ekki fyrr en seint á áttunda áratugnum af nokkrum bændum sem voru að grafa brunn. Þeir hlutu landsfrægð fyrir en ekki nema 32 yuan í fundarlaun hver ( 320 isk ), þeir sættu sig við það í fyrstu en síðar vildu þeir nú fá meira fyrir sinn snúð. Það varð úr að þeir fengu einhverskonar generál titil í safninu sem var sett upp til að sýna þessar þjóðargersemar. Þeim titli fylgdi þó vinnuskylda til 80 ára og enn í dag er einn þeirra að vinna í safninu. Hann situr grautfúll við tréborð og áritar bækur um hermennina og sögu þeirra. Það er stranglega bannað að taka af honum myndir og okkur var sagt að þó hann liti grimmilega út þá væri hann hinn vænsti kall en að hann brosti þó aldrei. En kallgreyið gat nú ekki annað en brosað þegar hann sá Flóka og ekki nóg með það þá fór hann að hlægja líka, líklega yfir því að sjá stálpað barnið keyrt um í kerru. Við keyptum svo eina svona bók og létum Flóka biðja hann um áritun sem vakti jafnvel enn meiri gleði hjá gamla manninum því þá gafst honum tækifæri til að snerta hvítingjann.

Óeirðirnar í Tíbet hafa þó sett strik í ferðaáætlun hópsins en hluti þessa hóps ætlaði að fara til Lhasa en hætta varð við þá ferð þar sem herlög hafa verið sett í Tíbet. Annars er ekki á vísan að róa með aðgang að fréttum af ástandinu hér í Kína vegna mjög mikillar ritskoðunar. Um leið og einhverjar óþægilegar fréttir um Kína eru sagðar á CNN þá slökkva þeir bara á útsendingunni. Þeir ritskoða líka það sem gerist á veraldarvefnum og gríðarlegt magn vefsíðna eru blokkaðar. Það er ekki lengur talað um The great China wall, heldur The great China firewall sem heldur upplýsingum í hæfilegri fjarlægð frá þegnum þessa lands. Í kjölfar misheppnaðrar flugránstilraunar fyrir rúmri viku þá hafa flugvellir aukið öryggisgæslu í innanlandsflugi til muna og við fengum að kenna á því þegar við flugum frá Peking til Xian en annað eins rugl höfum við ekki séð hingað til. Miklar tafir við öryggishliðin urðu ti lþess að þúsindir manna söfnuðust upp og eins og Kínverjum er einum lagið þá voru ekki myndaðar neinar sérstakar raðir heldur tróðust allir áfram í von um að komast í gegn. Ástandið var þó sýnu verst við flýtiafgreiðsluna en þar voru menn einfaldlega að missa vitið og öskruðu og nánast slógust til að komast áfram. Lögreglan snéri svo baki í lýðinn og reyndi eftir fremsta megni að ýta þeim aftur. Einn og einn var svo dreginn útúr þvögunni og voru þeir nær dauða en lífi. Þegar stór hópur byrjaði svo að hrópa í takt að löggunni þá átti maður von á öllu, en sem betur fer þá komumst við í gegn heil á húfi, en það voru nokkur moment þarna í þvögunni þar sem okkur hreinlega stóð ekki á sama.


6 Responses to “Allt klikkað í Kína”

  1. Þorgeir og co.

    Halló litla fjölskylda

    Búin að senda nokkrar myndir svo þið getið fylgst aðeins með Aldísi Unu stækka ;)

  2. Linda og Peter

    Hæ, gaman að heyra frá ykkur á síðunni okkar.
    skemmtilegar ferðasögurnar ykkar. Hlakka mikið til að tala við ykkur betur í síma þegar þið komið heim. Nú fer að styttast í þetta.
    Gangi ykkur vel áfram og knúsið Flóka snilling frá okkur.
    Hilsen

  3. Khall

    Jæja, þá fer að styttast í að sjá ykkur elskurnar, fyrst taldi maður vikurnar þangað til þið kæmuð til baka, svo dagana, og nú er maður kominn hérumbil niður í klukkutímana, þangað til maður fær stóra knúsið frá FLÓKA mínum, og svo þurfum við Flóki að ræða málin vel þegar hann kemur. Okkur hlakkar æðislega til að sjá ykkur.
    Blestu kveðjur til ykkar.
    Amma og afi. ekákáhá.

  4. Þorgeir og co.

    Eru Rakel og Konni komin heim ? OooH Hvenær koma þau mig hlakkar svo til !!

    Þetta fáum við að heyra oft frá Hirti Loga núna síðustu dagana ykkar ;)

  5. Jagga

    Þetta er greinilega mikið ævintýri og gaman að lesa hvað þið eruð að upplifa :)
    Hlakka til að sjá ykkur öll…Viktor Freyr er ekki að ná því afhverju við getum aldrei heimsótt Flóka..hann er ALDREI heima ;)

    Góða og örugga ferð heim !
    Kv.
    Jagga

  6. Anna Svava

    Shit, svakalegar lýsingar.
    ask

Leave a Response