San José, LA, Tokyo og Kyoto

March 9th, 2008 by webmaster

Þetta eru viðkomustaðir síðustu 7 daga, ansi góður pakki. Í mjög stuttu máli þá er ferðasagan eftirfarandi: Leiðinlegt 6 tíma flug milli San José og LA.  San José var la la en LA var frábær þrátt fyrir einungis einnar nætur stopp og við áttum góðan dag þar. Fórum á ströndina í Santa Monica og röltum svo um hverfið eftir kvöldmat. Daginn eftir var svo 12 tíma flug til Japan, sem væri ekki frásögu færandi nema fyrir það að við sátum uppi á annari hæð í Jumbó þotunni ( samt bara almennt farrými ). Sváfum ekkert í þessu flugi sem var dagflug, heldur horfðum á nokkrar bíómyndir og tíminn leið mjög hratt, reyndar svo hratt að við töpuðum 16 klst við það að fara yfir daglínu. Þegar við lentum í Narita þá fundum við lestina sem gekk til Tokyo og skröltum í henni í klukkutíma. Það var ótrúlegt að koma inná Tokyo lestarstöðina því aðra eins mannmergð höfum við ekki séð, þar sem allir voru að þjóta í sitthvora áttina. Við þurftum að hafa töluvert fyrir því að vera ekki fyrir og jafnvel troðast undir. Áttum mjög ánægjulegt samtal við leigubílstjóra sem skildi ekki orð í ensku og var ekki að fatta hvert við vildum fara. Það hafðist samt á endanum og mikið var gott að koma á hótelið sem var með það flottasta útsýni sem við höfum fengið  hingað til. Herbergið var á 34 hæð með útsýni yfir borgina og Fuji eldfjallið í bakgrunn. Eyddum tveimur dögum í Tokyo og lærðum á neðanjarðarlestakerfið sem við nýttum okkur til að komast á milli staða. Lestarstöðvarnar minna helst á spítala því þær eru fáránlega hreinar, sem og reyndar allir þeir staðir sem við höfum komið til í Japan. Án efa hreinasta land sem við höfum komið til og var mikill munur miðað við ástandið í Panama og Costa Rica. Eftir tvær nætur í Tokyo þá tókum við Shinkansen hraðlest til Kyoto, en þessi lest sem við tókum getur náð allt að 285 kph hraða. Erum búin að vera rosa dugleg að skoða okkur um og ganga uppað hnjám. Musteri, hof, tedrykkja og karioki eru orðnir fastir hlutir af tilverunni. En einu má ekki gleyma og það eru klósettin sem eru engu lík en þau eru þeim kostum búin að vera með upphitaðri setu, glæsilegu takkaborði sem hangir yfirleitt hjá klósettpappírnum og svo eru þau allra flottustu með sjálfvirkum opnara. Með takkaborðinu má svo stjórna mismunandi setuhita, stillingum fyrir vatnsmagn í sturtun og síðast en ekki síst hvernig vatnsbunu maður kýs að fá til að hreinsa bossann. Þegar slík aðgerð er valin þá kemur lítill armur og fer fyrir miðja klósettskál og bunar svo með umbeðnum krafti og hita. Þegar maður stendur upp að þessum aðgerðum loknum þá sturtar klósettið að sjálfsögðu niður autómatískt og allir eru glaðir. Þetta er hið mesta þarfaþing og það verður vont að venja sig á kalda setu á ný.


6 Responses to “San José, LA, Tokyo og Kyoto”

  1. Íris Heiður

    Vá ekkert smá ferðalag á stuttum tíma! Held ég biðji Óskar pípara að flytja þetta svakalega klósett inn til landsins…þvílíkur lúxus…buna beint á bossann ;)
    Hafið það rosalega gott áfram!
    Bestu kveðjur frá okkur in middle of nowhere.

  2. Eva Hrönn

    Gaman gaman, mig langar ekki í svona bunuklósett, kemur þá líka heitur gustur til að þurrka bossann eða? Held mig bara við pappírinn gamla og góða. Afmæliskveðjur til Rakel á ný ef hún skyldi gleyma að kíkja á Facebook!
    Ykkar Eva

  3. Aðalheiður

    Til hamingju með afmælið Rakel! Hlakka mikið til að hitta ykkur í Beijing eftir nokkra daga ;-)
    Luv. Aðalheiður

  4. Anna Svava

    Til hamingju með daginn gullið mitt. Vonandi eruð þið að gera eitthvað skemmtilegt……svona til tilbreytingar. Hafið það gott.
    ask

  5. Tyrkir eru ekki með þennan lúxús, þar fer bunan bara í eina átt, bara einn manjúal krani með köldu vatni, take it or leave it.

    Annars sá ég að leiðin ykkar er ekki plottuð í gegnum síðustu eftirstandandi borgar hinna heilögu þriggja…
    (þ.e. Babýlon – Atlantis – Stokkhólmur)
    Ef ykkur snýst hugur þá eruð þið velkomin til okkar, hér getið þið drukkið í ykkur þá velmegun, listir og menningu sem þessi stórkostlega borg býr yfir.
    Reyndar hefðum við getað sparað ykkur hringferðina í leit ykkar af nirvana og bent ykkur á að skjótast bara hina leiðina…

  6. Eva

    Til hamingju med afmaelid a Sunnudaginn Rakel min, Vona ad thid hafid thad rosalega gott i aevintyrunum, Knus Eva

Leave a Response