Sól sól skín á mig
Ferðafélagar mínir þurfa að hafa nokkur skilyrði uppfyllt til þess að njóta ferðalagsins sem best. Flóki þarf sand, í hvaða formi og magni sem er. Hann stoppar jafnvel þar sem vegavinnumenn eru að lagfæra gangstétt til þess að leika sér í sandinum sem þeir hafa grafið upp. Þegar hann kemst svo á sólarstrendur þá er sem hann dáleiðist og hverfi inní annan heim. Hann upplifir mikla ró í því að láta fínan sandinn renna á milli fingra sér og hann geislar af ánægju. Rakel þarf aftur á móti sól og hita, og ef það er ekki í boði þá eru verslanir í sæti númer tvö. Það hefur því tekið á að ferðast með henni í fjallahéruðum Panama og Costa Rica þar sem ekki er á vísan að róa með sólskin ( gistum síðast í 2500 m. hæð í frumskógi sem kallaður er Cloud Forest
). Á slíkum stað er að sjálfsögðu lítið sem ekkert um búðir til að hugga sig með þegar sólar nýtur ekki við. Mesta frustration-in er reyndar sú að við áttum von á sól og hita í þessum tveimur löndum en við gleymdum að taka hæð yfir sjávarmáli inní reikninginn þegar við vorum að kynna okkur ferðaáætlunina og áttum t.d. ekki von á að þurfa að nota gashitara til að drepast ekki úr kulda á kvöldin í skýjaskóginum.
En gærdagurinn var góður og allir fengu eitthvað við sitt hæfi hérna í LA. Fínt hótel og internet fyrir mig ( enginn minibar ), sólarströnd og tívolí fyrir Flóka ( engin skófla og fata ), sól og búðir fyrir Rakel ( ekki alveg nógu mikill hiti ).
Erum að gera okkur reddí fyrir Asíu dvölina en þar verður amk ekki mikill hiti, en vonandi nóg af sól, sandi, góðum gistingum og búðum.
Skemmtilegar lýsingar hjá ykkur að venju. Óskum ykkur góðrar ferðar
Íris & Óskar
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKU RAKEL OKKAR!!!! Njóttu dagsins sem best þarna í útlandinu elsku hjartans dúllan okkar!!!! Knús og kossar og kremj úr Mosfellsbænum!! Þín Þyri, Eyþór, Haukur, Orri og Edda.
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli, hún Rakel….hún á afmæli í dag!!!! Vei, vei.
Það er kannski 10. mars hjá ykkur en það er 9. hjá mér. Til hamingju með daginn sæta mín.
Hafið það gott áfram, hlökkum til að heyra meira frá ykkur.
Knús og kram
Linda og Peter
ELSKU RAKEL,
Innilegar hamingju óskir með það að vera orðin einu ári eldri !!
Njóttu dagsins og hafiði það gott:)
Það er allt gott að frétta hjá okkur, Aldís Una er orðin 5125 gr og 56 cm …..MJÖG dugleg að drekka.