Archive for January, 2008

Fyrsta bókun í Japan

January 25th, 2008 by webmaster

KoddamælingJapanir eru með eindæmum gestrisnir en ekki átti ég von á þessari þjónustu. Hótelið sem við vorum að bóka, Tokyo Park Hótel leggur mikið uppúr góðum nætursvefni og til þess að það megi lukkast sem best þá eru þeir með glæsileg Simmons rúm og sérsniðna kodda. Boðið er uppá mælingu og ráðgjöf við val á sem bestum kodda. Þetta er sko þjónusta sem ég ætla að nýta mér :)

Annars er þetta hið mesta glæsihótel og með eitt stærsta “anddyri” ( e. atrium ) í Japan. Það er uppá 10 hæðir, frá 25 til 35 hæð. Hótelið byrjar ekki fyrr en á 25, en það er nokkuð algengt í hótelbransanum þarna fyrir austan ( pakka skrifstofum neðst og hótelum efst ).

 1park_hotel.jpg

Panama og Costa Rica

January 23rd, 2008 by webmaster

landamærinVið erum að leggja lokahönd á skipulagninguna fyrir þessi tvö lönd. Eftir siglinguna um Karabíska og dvölina á Miami þá fljúgum við til Panama city og verðum þar í þrjá daga á hóteli við Panama skurðinn. Eftir það fljúgum við norður í land til David og keyrum uppí fjöllin. Þar munum við gista á kaffiplantekru rétt við Boquete. Þar verðum við í 4 daga og eigum örugglega eftir að gera fullt þar. Eftir þessa heimsókn þá keyrum við að landamærum Costa Rica nálægt karabísku ströndinni. Þar verður okkur hent út og látin labba yfir brú til Costa Rica eftir að hafa farið í gegnum tolla og landamæravörslu Panama. Þegar og ef við komumst yfir til Costa Rica þá þurfum við að fara í gegnum samskonar pappírsvesen en svo á að bíða okkar bíll sem tekur okkur til Cahuita. Ég er nokkuð spenntur að fara í þennan landamærapakka en líklega munum við stinga nokkuð í stúf með okkar risa ferðatöskur,barnakerru og alls konar dót innan um hardcore bakpokaferðalanga. Myndin er actually af umræddri brú.

Glæný frænka

January 21st, 2008 by webmaster

IMG_3913Þorgeir og Daddý eignuðust litla sæta prinsessu í dag 20 janúar. Fæðingin gekk eins og best verður á kosið og var sú stutta 51 cm og 14 merkur. Kynið var ekki vitað fyrirfram og því gaman að fá Rakel jr.  í fjölskylduna, en það verður erfitt að fara í reisuna og missa af fyrstu mánuðunum hjá henni og brjáluðum myndatökum. Hún lét þó bíða aðeins eftir sér, þar sem hún var sett þann 15 janúar og flokkast því undir merki Vatnsberans í stað Steingeitar. Um vatnsberabörn er m.a. sagt:

 “Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna.”

Þetta dugði þó ekki til að hjálpa strákunum okkar sem steinlágu fyrir Frökkum.

þetta er að þéttast

January 18th, 2008 by webmaster

Ferðin er að þéttast en samt er slatti sem er eftir að bóka. Negldi samt gistingu fyrstu 3 dagana í Kína, en þá verðum við á gistiheimili í Hutong hverfinu í Peking. Allt í svona traditional stíl, og þrátt fyrir að bóka “svítuna” þá er þetta ekki dýr gisting ( loksins eitthvað ódýrt í ferðinni )

maoerdoor.jpg

Flugið staðfest

January 16th, 2008 by webmaster

Jæja, þá er búið að staðfesta flugmiðana umhverfis heiminn. Þetta verða samtals 12 leggir og við verðum ekki nema ca 49 klukkutíma og 35 mínútur í flugvélum næstu 2 mánuði. Það er fyrir utan allan biðtíma á flugvöllum. Eins gott að þolinmæðin sé í góðu lagi.

Við eigum enn eftir að græja Visa áritanir, skipuleggja og bóka Miami, Japan og hluta af Kína ferðinni. Göldrum það með vinstri :)

globalvillage.JPG

Búið að bóka siglinguna!!

January 12th, 2008 by webmaster

Rétt í þessu vorum við að klára að bóka siglingu um Karabíska hafið :) 7 daga sæla, lagt upp frá Port Everglades, Florida.

Fleigið 

cruise.JPG

Nú er bara að klára flug og hótelbókanir, og þá getum við lagt í hann…..