Archive for August, 2007

Lau 11. Ágúst

August 12th, 2007 by webmaster

IMG_2295_LRVið byrjuðum daginn elsnmma, fórum saman á æfingu í Boot Camp og Flóki var á meðan hjá Hirti frænda sínum. Eftir æfinguna sóttum við svo báða strákana og fórum með þá á fjölskylduhátíð hjá Boot Camp, þar sem var fullt af veitingum, leiktækjum fyrir krakkana og körfuboltamót. Skemmtum okkur vel þar, en mikið getur verið erfitt að hafa hemil á tveimur krökkum í einu, pfúff, alveg spurning um að láta eitt duga :-) Fórum svo í bæinn og stilltum okkur upp fyrir Gay Pride gönguna. Ótrúlegur mannfjöldi og frábær ganga. Við vorum eiginleg alveg búin á því eftir göngumna en kíktum samt smá á Arnarhól til að hlusta á tónleikana. Kettirnir eru ekki enn komnir í sátt útí skúr og því orðið nokkuð tvísýnt um árangur. Greyin eru búin að vera þarna innilokuð í 5 daga og ég held að þau séu orðin hundfúl á þessu rugli. Gefum þessu smátíma í viðbót. Kveðja Konni og Rakel

Af Köttum og Krökkum

August 9th, 2007 by webmaster

IMG_1067Kynbótaræktunin útí skúr hefur ekkert verið að ganga neitt alltof vel. Hann Róbert má ekki koma nema í 2-3 metra fjarlægð frá Litlu en þá hvæsir hún og urrar eins og hún getur. Þetta er samt að smá koma, verður líklega gott eftir 2 daga, þ.e. að hann geti nálgast hana óáreiddur. Hins vegar er hann svo hræddur við hann Flóka að það er ótrúlegt. Hann hreinalega treður sér í öll skúmaskot til að komast hjá því að þurfa að hitta hann, Flóki fær því ekki að fara inn til að hitta hann fyrr en þetta er afstaðið, Róbert er líklega með nóg á sinni könnu. Skellti inn nokkrum myndum af Flóka síðan í Júlí. Stundum áttum við Rakel það til að sofa eilítið lengur en Flóki og einn morguninn ætlaði kappinn að hressa uppá útlitið og setja smá vax í hárið. Hann var ekki alveg með skammtastærðir á hreinu þannig hann lét bara nógu mikið til að vera viss ( tæmdi fuck… dolluna ). Svo vaktii hann okkur og kvartaði yfir því að hann klæjaði svo. Damn, við þurftum að þvo honum 20 sinnum um hausinn og það tók okkur um 2 tíma að ná þessu úr, hann var allavega með hreint hárið eftir þann þvott. ps. kvót dagsins er bókin er skrifuð af svo miklu cosmópólitísku mannviti – Sjón Kveðja Konni

Tengdasonurinn kominn í hús

August 7th, 2007 by webmaster

Nú er komið að því að Litla Kisa fái að kynnast móðurhlutverkinu. Í skúrinn er kominn þessi líka eðalfress með medalíur á alla kanta ( kannski að ýkja smá ). Þau munu svo dvelja þar saman næstu 4 – 7 daga og vonandi takast með þeim góð kynni. Eða með öðrum orðum, það er búið að pimpa köttinn. Tengdasonurinn tilvonandi er Blár Sómali ( loðið afbrigði Abyssíu ) og verðlaunaður í sínum flokki. Hann virðist vera nokkuð öruggur með sig og spígsporar um eins og hann eigi heiminn. Litla Kisan er ekki alveg að kaupa þessa ráðstöfun, hún hvæsir og gólar eins og hún getur í von um að geta hrakið prinsinn frá sér. Hér er smá lesning um þessa tegund http://www.Kynjakettir.is

Kveðja, Rakel og Konni

Halló halló

August 6th, 2007 by webmaster

IMG_0933Við getum hreinlega ekki verið þekkt fyrir að uppfæra ekki síðuna í heilt ár, það væri nú eiginlega skárra að loka henni, en við ætlum að gera heiðarlega tilraun til að halda henni á lífi og hér eru því fyrstu lífsmörk sl. 11 mánuði.

Það væri nú of langt mál að fara að telja upp það sem á daga okkur hefur drifið frá síðustu uppfærslu en við erum búin að vera í sumarfríi núna síðustu fjórar vikurnar og erum að klára það núna um verslunarmannahelgina. Fórum meðal annars inní Þórsmörk eina helgi. Erum búin að hafa það hrikalega gott en erum samt innst inni nokkuð fegin að vera að fara að vinna aftur. Koma smá reglu á lífið, vakna á eðlilegum tíma og jafnvel fara að mæta á æfingar!!!

Endilega krotið í gestabókina, ef einhver ennþá svo þolinmóður að koma hingað inn :) :)

Kveðja Konni