Archive for May, 2006

Flóki er kominn í leikskólann

May 2nd, 2006 by webmaster

IMG_2278acNúna er Flóki byrjaður á leikskólanum Smáralundi sem er hér aðeins neðar í hverfinu. Hann var bara stutt í dag og ég og Rakel vorum með honum. Hann labbaði með mömmu sinni í skólann og að sjálfsögðu var hann með fríðan flokk af dýrum sér við hlið. Dýrin voru alveg með það á hreinu að hér væri um merkisdag að ræða og ætluðu aldeilis ekki af missa af þessum tímamótum, það mættu allir í skrúðgönguna, Nói, Rebbi, Litla og Svarti en hann er nú yfirleitt fjarri góðu gamni þegar farið er í gönguferðir.

Flóki fékk nú enn eitt sárið í andlitið nú um helgina, loksins þegar glóðuraugað var við það að hverfa. Það atvikaðist þannig að hann var komin uppí rúm og var sofnaður. Litla kisan hafði stokkið uppá skápinn sem er við endann á rúminu hans þegar hann fór í háttinn og Nói sofnaði með Flóka inní herberginu hans með rassinn hálfan undir rúminu. Allt í einu er mikið brambolt inní herberginu og Flóki rekur upp þetta líka skaðræðisóp og Nói rýkur útúr herberginu. Við hlaupum inn og þar var Flóki hágrátandi að tala um að Nói hefði meitt sig. Við vissum nú að það hefði ekki getað verið og héldum bara að Flóka hefði brugðið þegar Nói stóð upp og hrist rúmið hans. Við tókum samt Flóka fram til að hugga hann og sáum þá að hann var allur í blóði í kringum munninn. Það fyrsta sem okkur datt í hug var að hann hefði bitið í tunguna á sér en sáum fljótlega að hann var með smá skurð útfrá hægra munnvikinu. Eftir smá rannsóknarvinnu er okkar kenning sú að Litla kisan hafi hoppað fram af skápnum á handriðið á rúminu en misst jafnvægið og dottið ofan í rúmið. Þá er henni svo brugðið að hún spólaði af stað ( með neglurnar úti ) rispað Flóka og stokkið útúr rúminu á Nóa sem lá á gólfinu. Við þetta rýkur hann á fætur og hristir rúmið hans Flóka. Þar sem Flóki hefur líklega aldrei tekið eftir kettinum áleit hann sem svo að Nói væri sökudólgurinn. Skelltum á þetta sótthreinsandi og svo plástur og þá voru menn sáttir, ekki síst vegna þess að nú fékk hann að sofa í stóra rúminu .

Skruppum austur fyrir fjall á verkalýðsdaginn og heimsóttum þar Hönnu og Óliver í sumarbústaðnum þeirra. Eftir það renndum við svo í sveitina til Mariu Weiss og Berlioz þar sem hundarnir fengu að leika sér saman og Flóki fékk síðbúna afmælisgjöf.

Kveðja
Konni