Archive for April, 2006

Pabbaklúbbur

April 30th, 2006 by webmaster

IMG_2162acÍ dag fórum við Flóki á okkar fyrsta fund í pabbaklúbbnum. Þar hittast nokkrir pabbar á sunnudagsmorgnum með krakkana sína, gefa öndunum brauð og fara svo á kaffihús. Í þetta skiptið voru 3 krakkar á fundinum, Flóki, Salka og Grímur. Endurnar á Reykjarvíkurtjörn eru greinilega mjög vel aldnar því það var varla að þær nenntu að éta brauðið sem var hent í þær. Krakkarnir brugðu því á það ráð að borða bara brauðið sjálf og kunnu vel að meta. Eftir að brauðið kláraðist héldum við á SegaFredo og fengum kaffi og með því meðan krökkunum gafst færi á að hlaupa og leika sér.

Kveðja
Konni

Kúlan ógurlega

April 23rd, 2006 by webmaster

IMG_9925aalÍ dag vorum við Flóki í 2ja ára afmæli hjá Óliver vini okkar, sem er nú ekkert frásögu færandi nema að Flóki datt með höfuðið á stól og fékk stærstu kúlu sem ég hef nokkru sinni séð. Til að bæta gráu ofan á svart þá leið næstum yfir mig þegar ég sá kúluna. Eftir nokkrar mínútur þá varð ég að krjúpa yfir klósettið því ekki nóg með að það væri að líða yfir mig heldur var ég kominn með æluna upp í háls. Ég varð föl eins og lík og hvít og köld á vörunum brrr. Ég þakka fyrir að ég var ekki ein með hann því þetta voru ekkert smá góð viðbrögð eða hitt þó heldur. Sem betur fer þá var Flóki hættur að gráta þegar ég þurfti að láta mig hverfa til að faðma klósettið. Ég sem hélt að ég væri nú frekar hörð af mér, en greinilega ekki þegar það kemur að Flóka litla. Á myndunum er kúlan búin að hjaðna svolítið og dreifast og svo líta svona hlutir alltaf miklu verr út live en á mynd, þessi kúla er allavega rosaleg.

Kveðja
Rakel kveif

Flóki 2ja ára – Til Hamingju

April 22nd, 2006 by webmaster

IMG_1135Í dag 22. apríl er Flóki Kristján 2ja ára. Hann er gríðarlega spenntur yfir öllum pökkunum og kökunum sem hann á von á í tilefni dagsins.

Hér getið þið svo séð hvað strákurinn hefur breyst á einu ári.

TIL HAMINGJU HAMINGJU HAMINGJU

Kveðja
Mamma og pabbi

Vorið er komið

April 17th, 2006 by webmaster

Þá er síðasti daguinn í þessu fína páskafríi að kvöldi kominn, við höfum haft það mjög gott, borða fullt af góðum mat og allt allt of mikið af súkkulaði. En öllu súkkulaðinu fylgdi nú sem betur fer nokkrir góðir málshætti. Ég var nú hrifnust af málsháttunum hans Flóka einn var á þessa leið Hægara er að finna að en gera betur annar Betra er ólofað en illa efnt .

Ég og Flóki tókum aðeins á vorverkunum á laugardagsmorguninn á meðan Konni fékk að sofa út. Við tókum til í matjurtargarðinum og sáðum rófufræum (inni), skoðuðum kartöflurnar sem standa sig vel í pampers pappakassa inni í þvottahúsi og eru byrjaðar að spýra. Þær fara sko niður á réttum tíma í ár og arfinn fær ekki að kæfa þær eins og í fyrra :-) .

Til að toppa þetta allt saman heyrði ég í Lóunni í dag þegar ég var með Nóa í göngu, svo sá ég hana og ekki bara einn fugl heldur 8 stykki. Mér finnst alltaf mjög gaman að sjá þessa elsku á vorin. Það sem mér finnst nú gera þetta enn merkilegara í ár er frétt á Vísi um að það hefði fyrst sést til hennar í gær við Kárahnjúka.

Kveðja
Rakel

Loksins, loksins, loksins

April 17th, 2006 by webmaster

IMG_0940acLoksins er restin af myndunum frá Tælandi komin inn. Það tók nú ekki nema rúma 2 mánuði að klára það. Nú lofum við ekki neinu um framhaldið því fæst orð hafa minnsta ábyrgð.

Höfum verið svona löt við að uppfæra vefinn þar sem við erum komin með hálfgerða leið á honum. Okkur langar til að fríska aðeins uppá hann og jafnvel setja hann á annað platform. Hætta þessu PHP kjaftæði og koma yfir á .Net ( tækni mumbo jumbo sem enginn hefur áhuga á ).

Erum annars bara hress og kát. Flóki talar meira með hverjum deginum serm líður og vill bara vera úti í garði að leika sér. Hann áttaði sig á töfraorði sem gefur honum aðgang að öllu því sem hann langar í, og það er Mamma mín, má ég… (sagt með væmnislegum tón).

Kveðja
Konni og Rakel