Gleðilegt nýtt ár
Nú er árið á enda og þá reikar hugurinn til baka yfir farinn veg. Það er skrítinn tilviljun en fyrir 5 árum þá var ég að byrja í nýrri vinnu og nú er Rakel að gera slíkt hið sama. Einnig vorum við að fara til Asíu fyrir 5 árum eins og við erum að gera núna.
Það sem mér finnst bera hæst á árinu sem er að líða er hvað hann Flóki er búin að breytast gríðarlega. Ég byrjaði árið í feðraorlofi og fylgdist með honum standa upp í fyrsta sinn en nú í lok árs er drengurinn farinn að tala heilan helling, hleypur um og leikur sér. Svo eru ferðalögin innanlanlands og utan mjög minnisstæð.
Við erum orðin mjög spennt fyrir ferðina en erum líka kvíðin því ferðalagið til Thailands mun taka rúman einn og hálfan sólarhring. Við trúum því samt að þetta sé meira en fyrirhafnarinnar virði því allir sem við höfum hitt og hafa farið þangað eru á einu máli um að þetta sé paradís á jörð.
Við óskum öllum nær og fjær Gleðilegs nýs árs og þökkum allt gamalt og gott.
Konni, Rakel og Flóki