Archive for November, 2005

Barcelona ( barðelonja )

November 15th, 2005 by webmaster

Búin að vera 3 daga í þessari líku geggjuðu borg. Það er eitthvað alveg magnþrungið hérna ( kannski bara það að ég skil ekki orð í spönsku! ). Mér hefur reyndar ekki gefist tækifæri til skoða neitt af viti hérna þar sem dagskráin á ráðstefnunni er ansi þétt og alltaf langt fram á kvöld. Ég álpaðist þó einn í strætó í gærkvöld á leiðinni heim og það var fínt. Vissi ekkert hvert ég var að fara. Fór svo bara út einhversstaðar og fann mér líbanskan resturrant þar sem enginn talaði ensku. Náði þó að panta eitthvað sem ég hafði ekki hugmynd um hvað væri, en það var alveg ágætt. Keypti svo einhverja túristabók á uppsrengdu verði til að átta mig á hvar ég væri staddur. Það kom þá reyndar í ljós að ég var bara alls ekkert langt frá hótelinu þannig að ég rölti bara þangað.

Ráðstefnan er búin að vera fín. Ég held að það séu um 3000 manns á ráðstefnunni ( þar af 2900 karlar ) og það er magnað sjá hvað allt er vel skipulagt og gengur vel fyrir sig ( kannski útaf fjölda karla, hehe ). Þetta er náttúrulega svoldil talibana boðskapur en Microsoft er með allt og gerir allt best :)

Rakel setti inn albúm í gær með ýmsum myndum ——— Kristján R Madrid

Það var fyrir 32 árum

November 13th, 2005 by webmaster

Í dag eru 32 ár síðan ég leit dagsins ljós í fyrsta skipti. Ég er eiginlega ekkert að kaupa það hvað maður er að eldast en óeðlilegar breytingar á hárvexti minna samt mjög sterkt á þessa staðreynd. Einhverra hluta vegna þá hefur hárunum á hausnum farið fækkandi en koma þess í stað fram á baki, í eyrum, augnabrúnum og nösum. Hvað er málið með það. Ég leit í spegilinn um daginn og á móti mér brosti þetta glæsilega hár sem stóð beint útúr eyranu á mér eins og loftnet, það kom þarna á einni nóttu,,,

Annars var ég að tékka á því hvað var í fréttunum á þessum konunglega degi árið 1973 og þá var allt í rugli með sambúð Araba og Ísrealsmannna, Watergate málið var í fullum gangi og af innlendum fréttum bar endurskoðun varnasamningsins hæst, það er nú ekki mikið sem breytist.

Annars sit ég hér á Heathrow og skrifa þessa frétt þar sem ég er á leiðinni til Barcelona á Microsoft ráðstefnu á vegum fyrirtækisins. Ég kem væntanlega með einhver fréttaskot í vikunni.

Konni