Ef þú vilt fá gæludýr sem lúkkar vel þá er málið að fá sér eðlu, og til að gera dæmið ennþá flottara þá skírir þú hana ASCII (tölvunördahúmor). Ég er þó hálf hræddur við hana og þegar ég fékk að halda á henni einu sinni þá leið mér eins og hún væri risa padda að skríða upp hendina á mér…..
Hún samt víst hið besta skinn og er hætt að ráðast eins mikið á eigandann eins og hún gerði, bíta hann og slá með risa halanum sínum, tíhíhí.
Nei ég held að ég láti pakkan sem ég er í núna ( risa hundur og 3 kettir ) duga. Reyndar erum við líka með gullfiskinn Kobba kló í fóstri þessa daganna og hann veitir litlu kisunni ómælda gleði.
Konni
Okkur Rakel finnst þessi gaur vera alveg killer söngvari. Hann er á leiðinni hingað til lands til að halda tónleika og við erum búin að redda okkur miðum. Tónleikarnir verða 11 Des nk í Fríkirkjunni, og við getum varla beðið.
Antony þessi er transi frá New York og er með rödd sem er engu lík, ég hélt alltaf fyrst að þetta væri svertingi og það kom mér verulega á óvart að sjá myndir af honum.
Nú er bara að halda áfram að hlusta á diskinn hans til að stytta biðina
Konni
Ps. Stebbi í vinnunni segir að þetta sé gay tónlist…..
Við erum svo löt við að uppfæra þessa síðu að það hálfa væri nóg. Klassíska afsökunin er að það sé svo mikið að gera en það hlýtur þá að vera ansi mikið því nú er mánuður síðan við bættum einhverju inn síðast.
Á þessum mánuði hefur nú töluvert gerst. Við fórum sællar minningar til Póllands ( sjá myndir í gallerý ), Rakel gaf mér XBOX sem er bara gaman og svo fórum við í æðislegt brúðkaup um daginn.
Annars er ég á leiðinni til Barcelona um miðjan nóvember og verð þar í tæpa viku á Microsoft ráðstefnu. Því miður fer ég einn þangað sem er svoldið leim en mig hefur lengi langað til að heimsækja þessa borg.
Konni