Það er mikill ferðahugur í okkur þessa dagana því í næstu viku erum við á leiðinni til Póllands, á árshátíð TMSoftware. Áfangastaðurinn er Varsjá þar sem við verðum í 4 daga.
Flóki fer ekki með í þetta skiptið, heldur verður eftir á klakanum í góðum höndum Hjartar Loga(5 ára) frænda síns. Þeir munu eflaust hafa ofan af fyrir Þorgeir og Daddý með allskyns sprelli og látum.
Hundurinn ógurlegi fer austur fyrir fjall þar sem hann er nú orðin kunnugur staðháttum eftir að hafa verið þar 2.svar áður.
Konni og Rakel
Nú erum við búin að bóka ferðina til Tælands. Förum út 1 jan á nýju ári og komum heim 25 dögum síðar. Flóki kallin kemur með og vonandi mun flugið fara vel í hann. Þetta eru 11 tímar út frá London og 13 tímar heim, það er eiginlega too much.
Við verðum nú ekki ein í Tælandi heldur verður Afi Jón og fjölskylda þar. Þorgeir, Daddý og Hjörtur fara líka og verða með okkur í fluginu. Það er nú ekki allt því Eva Jó og Jay verða þarna líka ásamt stórfjöldskyldu Evu. Svo bara að vona að Hemmi Gunn verði á svæðinu til að trylla mannskapinn….
Þetta er nú ennþá hálf óraunverulegt en það er búið að skuldfæra af kortinu þannig að það er ekki aftur snúið
Konni og Rakel