Það var stór dagur hjá þeim Maggý og Evu laugardaginn 23 Júlí síðastliðinn, en þá létu þær pússa sig saman. Okkur Rakel var boðið, en giftingin fór fram í Áskirkju og svo var veisla í Valsheimilinu.
Við Rakel höfðum fundið alveg geggjað kort í New York sem var með tveimur brúðum framan á, how perfect? , þetta er eitthvað sem þú færð ekki í hvaða bókabúð sem er. Allavega ekki í Bókabúð Böðvars hérna í firðinum
Til lukku með daginn stelpur
Konni
Gleði-ferðinni til NY lauk mánudaginn 17 júlí en þá vorum við búin að vera þar í viku í góðu yfirlæti hjá Hildó og Andrés. Við vorum nokkuð heppin með veður, sól og blíða nánast allan tímann. Kári Stefáns sagði um daginn að NY væri heit og rök og það er góð lýsing.
Hildó og Andrés búa núna uppá 105. stræti ( austan megin ) sem er nánast byrjunin Harlem. Þarna var þó ekki eins mikið af svarta manninum og í Brooklyn þar sem þau bjuggu síðast en þeim mun meira af latino fólki. Visa kortin eru ennþá heit eftir ferðina þar sem það mæddi mikið á þeim í hinum fjölmörgu verslunum sem urðu á vegi okkar.
Eva Jó kom svo til NY og hitti okkur í rúmlega sólarhring og það var mjög gaman. Fórum í sightseeing um lower Manhattan, út að borða á klikkaða Indverska staðinn og enduðum svo kvöldið á Comedy Cellar sem var bara geðveikt fyndið.
Takk Hildó og Andrés fyrir gistinguna og skemmtilega viku
Konni