Eftir að við komum úr útilegunni á sunnudaginn fórum við á Víkingahátíð niður við Fjörukrána. Gaman að sjá hvað það er mikið lagt í þetta og allur aðbúnaður og búningar vandaðir. Horfðum á eina orustu sem var háð þarna úti á túni og ótrúlegt að enginn skuli hafa slasast í þeim átökum. Rákumst þarna á Hjört Loga sem var að gera at í einhverjum kalli og Rakel náði að bregða honum svo rosalega með að þykjast vera kallinn að taka í hnakkadrambið á honum. Svipurinn sem kom á Hjört var óborganlegur, munaði minnstu að hann pissaði hreinlega á sig af hræðslu.
Náðum annars nokkrum mjög góðum myndum með föstu linsunni, en við erum ennþá að reyna að ná almennilegum tökum á henni
Konni
Á þjóðhátíðardaginn hengdum við fákinn aftan í Picassó-inn og héldum í aðra útilegu sumarsins. Að þessu sinni fórum við með Þyri og Eyþór og krökkunum þeirra uppí Skorradal. Fórum Hvalfjörðinn og það er frábært að keyra hann núna eftir að göngin komu. Lítil sem engin umferð og ótrúlegt hvað það er fallegt um að litast þarna. Eitthvað sem maður gaf ekki mikinn gaum á meðan það var kvöð að fara þessa leið. Það tók þokkalega á fyrir bílinn að draga fákinn upp bröttustu brekkurnar yfir Dragann, en hann hafði það nú af blessaður.
Við nældum okkur í alveg geggjað tjaldsvæði sem var að öðru leiti pakkfullt. Sólin lét sig sko ekki vanta og allir eru vel grillaðir eftir ferðina. Flóki lék á alls oddi eins við var að búast og sá um að ræsa okkur Rakel fyrir allar aldir bæði laugardag og sunnudag
Á laugardagskvöldið fórum ég og Eyþór ásamt Hauk og Orra í fjallgöngu þar sem við þurftum að brjótast í gegnum nokkuð þéttan skóg, en það er eitthvað sem maður hefur ekki þurft að venjast hingað til. Pökkuðum svo saman í grenjandi rigningu og héldum heim sæl og glöð
Konni
Fjölskyldan skellti sér í fyrstu útilegu sumarsins um síðustu helgi. Þetta var nú svona test-ride á nýja fellihýsinu sem við vorum að fá okkur. Þetta reyndist hinn mesti eðalvagn og við erum mjög ánægð með gripinn. Ótrúlegt að hafa öll þessi þægindi eins og miðstöð, vask, ljós, skápa, borð og stóla og allt sem þessu fylgir. Ég á það a.m.k. til að rugla saman þægindum og hamingju og er þ.a.l. mjög hamingjusamur um þessar mundir.
Við fórum að þessu sinni austur á Þingvelli og höfðum það mjög gott. Flóka fannst alveg æðislega gaman og það er fínt að geta leyft honum að leika sé svona úti. Svo fórum við í rosa góðan göngutúr á Laugardagskvöldið eftir virkilega vel heppnað grill. Á sunnudeginum kíktum við svo á systir hans Nóa sem er því miður orðin nokkuð lasin núna. Þau höfðu nú samt gaman af því að sjá hvort annað þó þau gætu nú ekki leikið sér mikið saman.
Nú verðum við bara að vera dugleg við að fara í ferðalög
Konni
Það er búið að vera léleg uppfærsla á síðunni undanfarið hjá okkur. Það er samt búið að vera nóg að gera ( það er líklegast ástæðan fyrir fáum uppfærslum ) og margt búið að bralla í Þúfubarðinu. Flóki er löngu byrjaður að labba og fer nú hraðar yfir en nokkru sinni áður, pfúff maður gerir varla annað en að elta hann…
Rakel er líka komin á fullt í ræktun á matjurtum og við skruppum uppí Kjós eina helgina til að fá alvöru mold í beðin. Svo er bara að bíða þar til maður getur bara farið útí garð á táslunum og sótt sér ferskt salat í matinn
Konni