Archive for April, 2005

Afmælisveislan

April 25th, 2005 by webmaster

Flóki hélt upp á eins árs afmælið á sunnudaginn og þá var glatt á hjalla. Það komu fullt af gestum sem komu allir með rosalega flottar gjafir. Rakel bjó til dýrindis veitingar og bakaði ýkt flotta froskaköku. Svo var sunginn afmælissöngurinn fyrir drenginn og hann blés á fyrsta afmæliskertið sitt ( með smá hjálp ).

Veðrið var að sjálfsögðu eins og við höfðum pantað það og ég setti upp skiltið hans Flóka í garðinn og merkti þennan atburð inn á það ( gleymdist að taka mynd af því ).

Konni

Flóki eins árs – Til hamingju

April 22nd, 2005 by webmaster

Í dag 22. apríl á hann Flóki Kristján 1 árs afmæli. Hann er reyndar lasin og veit ekkert að hann á afmæli. Það er ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða.
Hann ætlar svo að hafa afmælisboð á sunnudaginn og vonast eftir að fá marga stóra pakka….

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ELSKU KÚTUR

Mamma og Pabbi

Pabbi sjötugur

April 19th, 2005 by webmaster

Þann 2. apríl síðastliðinn varð pabbi sjötugur. Íris og Þyri voru búin að skipuleggja óvænta veislu fyrir mömmu og pabba og það gekk allt eins og í sögu. Tilkynning var sett í Moggann um að hann ætti afmæli og tekið yrði á móti gestum á Hótel Loftleiðum. Þar sem þetta átti að koma pabba á óvart þá var haft samband við blaðburðardrenginn og hann beðinn um að setja ekki neitt blað hjá þeim þennan dag, heldur var farið með miða heim til þeirra um nóttina og sagt að Mogginn tefðist eitthvað. Við komum svo í morgunkaffi til Mömmu og Pabba og með Moggan með okkur þar sem var búið að strika yfir allt það sem ekki mátti sjást í tilkynningunni.
Mömmu og pabba var svo sagt að vera tilbúin kl 14:15 því þá yrðu þau sótt. Ég veit nú ekki hverju þau áttu von á en alveg örugglega ekki því sem beið þeirra. 7 metra limúsína mætti á svæðið og keyrði með þau af stað. Stelpurnar voru búnar að setja körfu með konfekti og fínerí bílinn sem beið þeirra. Limman stoppaði svo í Garðheimum þar sem þau fengu afhentan risa blómvönd frá okkur systkynunum, eftir það renndi hann með þau niðrá Hótel Loftleiði þar sem estirnir biðu þeirra. Þau áttu náttúrulega ekki til orð yfir herlegheitunum.

Þetta tókst alveg svakalega vel og þetta er dagur sem mun renna okkar seint úr minni. – - – Til hamingju

Konni

Þetta er nú eitthvað öfugsnúið!!

April 14th, 2005 by webmaster

Það má segja að hlutverkaskipting hjá okkur Rakel sé nokkuð öfugsnúin um þessar mundir. Hún er bara í útlöndum á brjáluðum fótboltaleikjum meðan ég er heima og sé um heimilið. Einhverntíman hefði þetta þótt frétt til næsta bæjar!!
Ég er samt ekkert ósáttur. Við Flóki erum þvílíkt að bonda hérna að það mun endast okkur ævilangt. Ég sæki hann úr pössun tæplega hálf fimm, svo förum við heim, skömmum Nóa aðeins (því hann er alltaf búin að gera eitthvað af sér), lögum svoldið til ( Flóki fylgir fast á eftir mér og draslar aftur allt út), og reynum að leika okkur saman í leiðinni. Svo kíkjum við nú eitthvað út og förum í búðir ( Flóka finnst geðveikt gaman í búðum ) og endum svo á að fara með Nóa kallinn út að labba. Þá set ég Flóka bara í svona bakpoka sem við erum með í láni og svo þrömmum við út um holt og hæðir. Komum svo heim sælir og glaðir, fáum okkur að borða, reyni að baða Flóka ef tími gefst til og svo fer hann bara að sofa um 8, fjúúú ég er engin smá super nanny.

Annars er Rakel núna aftur útí Feneyjum að vinna en skellti sér til Torino á Juventus-Liverpool í meistaradeildinn. Þetta eru nú svoldið skuggalegar myndir sem hún tók af látunum sem voru þarna fyrir leikinn. Við Flóki erum strax farnir að sakna hennar en það er nú ekki nema tæp vika þar til hún kemur aftur, það verður fljótt að líða.

Konni – a desperate housewife :-)