Archive for March, 2005

Flóki stækkar og stækkar

March 15th, 2005 by webmaster

Úr Hafnarfirðinum er allt gott að frétta, við Rakel erum bæði farin að vinna og Flóki er hjá dagmömmu allan daginn. Honum líkar vistin vel en er oft ansi þreyttur þegar hann kemur heim enda mikil viðbrigði að vera í hamagangi með öðrum krökkum allan daginn eftir rólegheitin undanfarna mánuði. Enn ein tönnin kom upp hjá honum fyrir u.þ.b. viku síðan og eru þær núna 7 talsins.
Ég var að skoða gamlar myndir ( ekki svo gamlar reyndar, ca 9 mánaða gamlar ) af Flóka áðan og ég trúi því eiginlega ekki að hann ahafi einhverntíman verið svona lítill og ósjálfbjarga. Núna skríður hann um allt og stendur upp hvar sem er og tætir og rífur allt sem á vegi hans verður. Svo er hann farin að reyna að tala heilmikið, það er alveg greinilegt að það er mikill kraftur í þessum gaur.

Konni