Archive for February, 2005

Engar fréttir eru góðar fréttir…..

February 21st, 2005 by webmaster

Núna fer að líða að því að ég fari aftur til vinnu eftir 2 mánaða feðraorlof með Flóka. Þetta er búið að vera æðislegur tími sem við feðgarnir höfum átt saman og ótrúlegt hvað það gerist margt á svona stuttum tíma hjá honum Flóka.
Eftir nokkurt hlé er Flóki aftur komin á sundnámskeið og það finnst honum æðislegt. Hann komst nú reyndar í hann krappann í síðasta tíma en þá mistókt mér að útfæra eina köfun þannig að Flóki snérist í kafi og spriklaði bara en Rakel náði honum upp. Flóki saup aðeins á vatninu en það var ekkert til að hafa áhyggjur af og við héldum ótrauð áfram það sem eftir var tímans.

Í síðustu viku þá byrjaði Flóki svo hjá dagmömmu og það gekk eins og í sögu. Hann var nú bara stutt svona fyrstu dagana en honum virðist svona vera nokkuð sama hvar hann er skilin eftir, ekkert væl eða neitt.

Meira síðar………

Konni

Rakel Feneyingur

February 4th, 2005 by webmaster

Núna er síðasti dagurinn minn í Feneyjum og þetta hefur verið mjög fín ferð. Ég fékk leyfi til að vitna í bloggið hjá henni Aðalheiði en hún er nefnilega svo góður penni. Hér er blogg brot um sunnudaginn hjá okkur
“Það var rosaleg stemming á Markhúsartorginu og hvar sem maður leit voru fígúrur aftur úr miðöldum, kóngar, hertogar, hermenn, riddarar, hefðarkonur og furðuverur. Við eyddum öllum deginum á torginu tókum myndir, fylgdumst med skemmtiatriðum og sátum í sólinni sötruðum hvítvín og drukkum í okkur stemminguna. Þetta var ótrúlegur dagur og þvílíkt gaman að hafa upplifað Karnivalið í Feneyjum.”
Hérna er hægt að lesa meira á síðunni hennar.

Ég tek lest í fyrramálið til Lindu og Peters en þau eru í Austurríki, ég efast ekki um að það verði svaka fjör hjá okkur og ég hlakka til að sjá bæinn hans Peters. Svo tökum við lagið á skíðum skemmti ég mér ha ha ha ha

Svo eru nokkrar myndir frá ferðinni í gallerýinu

Rakel lukkunarpamfíll