Jóla Hvað!!!
Jæja, þá er allt jólastressið rokið í burtu og vonandi gefst þá betri tími til að uppfæra þessa síðu. Þetta voru fyrstu jólin hans Flóka og þau voru hreint út sagt æðisleg.Á aðfangsdag komu Þorgeir, Daddý og Hjörtur Logi í mat og við héldum jólin saman hérna í Þúfubarðinu. Á boðstólnum var KEA hamborgrarhryggur með rauðvínssósu, sem var afbragðsgóður. Ég held að maturinn hafi ekki heppnast svona vel í mörg ár. Hérna eru myndir frá aðfangadegi
Á jóladag var svo hið árlega fjölskylduboð og að þessu sinni var það haldið hjá mér og Rakel. Alls mættu 21 manns í boðið enda var 100% mæting. Ótrúlegt hvað allir hjálpuðust vel að við undirbúninginn en þar er helst að nefna Þyri, Eyþór og Íris sem hreinlega tóku yfir eldhúsið og gerðu allt klárt fyrir borðhaldið.
Konni