Ég er búin að týna fína treflinum mínu sem ég var svo voðalega lukkuleg með, ég er að vona að ég hafi gleymt honum heima hjá einhverjum en veit bara ekki hverjum. Ef þú vinur kær ert með trefilinn villt þú þá láta mig vita. Ég er með trefilinn á myndinni
Rakel
Ég ætlaði aldeilis að gefa Flóka hollan mat, steikti lifur og saxaði niður gænkál og plataði þetta svo ofaní hann með sveskjumauki. Hann borðaði bara slatta af þessu og fékk svo graut og mauk í desert. Ég sá fyrir mér náðuga nótt þar sem hann gæti ekki verið svangur eftir öll þessi ósköp en því miður þá endaði þessi átveisla með hrikalegri ælu og miðnæturbaði. Ég þurfti að taka allt utan af rúminu hans og meira að sega bangsinn þurfti að fara í þvott og Flóki í bað. Já ég held að ég taki því rólega næst þegar ég að stuffa hann með hollum mat fyrir svefninn
Ég hef annars aldrei verið yfir mig hrifin af svona subbuátmyndum en nú eru breyttir tímar
og mér finnst þær ýkt sætar
Rakel
[mynd úr albúmi48]Konni átti afmæli á laugardaginn 13.nóvember, og varð drengurinn 31. árs. Hann var vakinn með nýrri vekjarklukku sem ég gaf honum í afmælisgjöf og svo fékk hann morgunmat í rúmið, Flóki gaf honum miða í leikhúsið og kettirnir kokkahníf. Nói gaf honum leðurhanska sem væri nú kannski ekki frásögu færandi nema að þetta var í annað sinn sem Nói gefur Konna þessa sömu vetlinga, hann gaf honum þá nefnilega í jólagjöf í fyrra en þeir voru orðnir skítugir svo ég þreif þá bara og pakkaði þeim inn í gjafapappír. Öll fjölskyldan mætti svo í kaffiboð og það er aldrei fámennt þegar allir mæta. Við hefðum nú alveg mátt vera með tvöfalt af veitingum, það fór því enginn saddur frá okkur þetta árið, því miður en viðj lofum meiru næst. Rakel