Archive for October, 2004

Loksins loksins

October 27th, 2004 by webmaster

[mynd úr albúm 42]Loksins gerist eitthvað á þessari síðu og það eru komin nokkur ný albúm í gallerí-ið. Með von um að við tökum okkur á í að uppfæra síðuna oftar. Rakel

Flóki er komin með tennur !!!!

October 8th, 2004 by webmaster

Nú er hann Flóki komin með 2 tennur í neðri góm. Konni fann þær fimmtudaginn 30 sept og þær hafa komið enn meira upp síðastliðna viku. Þessu fylgir reyndar nettur pirringur í Flóka, og þá sérstaklega á nóttunni. Í fyrsta skipti síðan snáðinn kom í heiminn höfum við verið að missa svefn útaf honum. Það hefur reyndar ekki verið mikið en það er alltaf mikið að þurfa að vakna um miðjar nætur. Nú þarf að fara að tannbursta drenginn kvölds og morgna svo tennurnar haldist hreinar og heilar. Konni

Heimsóknir á Floki.net í September

October 5th, 2004 by webmaster

Í september mánuði síðastliðnum var ótrúlega mikil traffík á síðunni. Þessi mikla umferð var vegna þess að Floki.net komst á Tilveran.is og á b2.is (áður kallað batman). Þangað fóru linkar á hristimyndagallerýið og það er ótrúlegt hvað heimsóknirnar ruku upp dagana eftir að linkarnir fóru inn á þessar síður. Þegar Tilveran kom með link á Floki.net þá ruku heimsóknir uppí 1000 þann daginn og það sló öll fyrri met, en þegar Batman kom með link þá fóru heimsóknir í rúmlega 5200 yfir daginn (ath. 1 heimsókn er = 1 uppfletting. 1 aðili getur verið með fleiri en eina uppflettingu ef hann t.d. skoðar margar myndir) Eftirfarandi eru tölur fyrir September 2004 Accesses September 2004 Total Visits 16061 Total Unique 5488 Top 10 Visited Pages Myndagallerý 14180 88.29% Main Site 1226 7.63% Gestabók 331 2.06% Bloggsíða 324 2.02% Total 16061 Myndaalbúmið sem inniheldur hristimyndirnar hefur verið heimsótt 5835 síðan það fór í loftið. Konni