[Mynd úr albúmi38 ]Við vorum að prófa að taka myndir í stúdíó-inu okkar útí bílskúr og settum nokkrar þeirra inní myndagallery-ið. Rakel gekk um hverfið í gær og í fyrradag og týndi lauf í fötu til að nota sem “”props”" á myndunum. Hún reyndi að láta lítið fyrir sér fara þegar hún var að moka laufblöðum og reyniberjum í fötuna, en þar sem hún var með Nóa með sér þá hefði hún allt eins getað verið með skilti á bakinu. Þetta kom bara nokkuð vel út og í raun betur en við áttum von á. Flóki er reyndar búin að vera með kvef og það sést nú alveg á myndunum. Konni og Rakel
[Mynd úr albúmi35]Hérna erum við búin að taka saman nokkrar myndir af Flóka í eitt albúm. Þarna inni má meðal annars sjá myndir af Flóka í sundi, myndir af Flóka í nýja rúminu sínu og svo nokkrar myndir úr hálfgerða stúdíóinu okkar sem við erum að reyna að koma okkur upp inní bílskúr. Það er ótrúlegt að sjá hvað drengurinn vex og dafnar en hann er að verða 5 mánaða þann 22 sept. Flóki er farin að babbla allan daginn en það er ekki nokkur leið að skilja hvað hann er að reyna að segja, en það er örugglega eitthvað merkilegt. Konni
[Mynd úr albúmi33]Í gær fór öll fjölskyldan í göngutúr upp við Hvaleyrarvatn í hreint út sagt frábæru veðri. Við tókum Flóka með í Baby Björn pokann og gengum svo upp um hóla og hæðir. Síðastliðið vor fórum við oft með Nóa þarna upp eftir og þegar Flóki fæddist þá hlóð ég vörðu uppá hæðinni fyrir Flóka og við höfum svo alltaf bætt í hana í hvert sinn sem við förum þangað uppeftir. Á þessum slóðum er ekkert vatn fyrir Nóa sem er yfirleitt að drepast úr þorsta þegar við komum upp. Í vor hafði ég því farið með tóma fötu uppeftir og skorðað hana vel til að safna regnvatni í svo Nói gæti fengið sér sopa. Þegar við komum upp í gær var hinsvegar komin köttur í ból bjarnar eða réttara sagt fugl í fötu Nóa. Dauður fugl var í fötunni og greinilega búin að liggja þar lengi og orðin ansi sjúskaður. Þar sem við Rakel erum búin að liggja yfir Animal Planet undanfarnar vikur þá var það fyrsta sem kom upp í hugann að mynda hræið í bak og fyrir. Ég veit að þetta fer kannski fyrir brjóstið á sumum en það er nú ekki hægt að segja annað en að fuglinn sé líka komin í haustlitina. Konni
[Mynd úr albúmi34]Á laugardaginn var réttað í Kjósinni en því miður þá gátum við ekki tekið þátt í sjálfri smalamenskunni, heldur komum síðar um daginn þegar búið var að koma fénu í réttir. Það var ógeðslega gaman að hlusta á kindurnar jarma og sumar öskuðu hreinlega. Nói sleppti sér gjörsamlega og hljóp eins og hann hafi verið að sleppa út úr margra ára prísund. Einn hrúturinn stangaði nú bara réttargirðinguna þegar Nói nálgaðist og var alveg til í að takast á við hann. Eftir að hafa tekið slatta af myndum og leyft Nóa að rasa út þá héldum við uppá Möðruvelli. Þar hittum sveitapakkið og fengum okkur ljúfengt hangikjöt sem við höfðum nú kannski ekki unnið okkur inn fyrir. Konni
Á föstudaginn síðastliðinn var settur inn linkur á tilveran.is Þessi linkur var í myndaalbúmið þar sem við erum öll að hrista okkur í framan. Linkurinn kom á síðuna um 19:20 á föstudagskvöldið og þegar komið var fram að miðnætti þá höfðum við fengið um 1000 uppflettingar á vefinn ( hitt ). Nú í dag er farið að hægja aðeins á umferðinni en samtals höfum við fengið um 4000 hitt á síðuna síðan á föstudaginn. Það er búið að vera gaman að fylgjast með allri þessari traffík en við getum náð fram ansi magnaðri statistík með vefsíðuteljara sem við settum upp fyrr í sumar frá bbclone.de Konni
[Mynd úr albúmi32]Við fórum í matarboð til Evu og Ölvirs á laugardaginn. Allir komu með einn rétt og var skilyrðið að rétturinn væri hversdagslegur eða einn af þessum venjulegu mánudagsréttum á hverju heimili fyrir sig. Maturinn var mjög góður og fjölbreyttur. Það var kjúklingur, pasta, núðlur, fiskur og salat. Það var frekar skrítin stemming hjá okkur eftir andlitshristukeppnina, því þá voru allir búnir að hrista úr sér allt vit. Myndir úr keppninni eru í myndagallerýinu Rakel
[Mynd úr albúmi31]En samt var hann svona á við meðalstóran labrador. Ég var að renna í gegnum gamlar myndir sem ég hafði skannað inn og rakst á þessar af Nóa. Þegar maður sér þessar myndir núna og horfir svo á hann í dag þá er þetta bara rugl, hundurinn er eins og hestur. Mér finnst nú reyndar gott að vita af honum á nóttinni, því ef einhver óboðinn ætlaði sér hingað inn þá held ég að Nói myndi nú alveg sjá um að stoppa það. Ég ætti nú að taka einhverja samanburðarmynd til þess að maður sjái stærðarmuninn svona svart á hvítu. Konni
Fyrir rétt rúmum mánuði síðan settum við upp teljara á síðuna til að geta fylgst með því hversu oft hún væri heimsótt og hvaða síður á vefsvæðinu eru mest skoðaðar ( það eru reyndar bara 4 síður ennþá ). Það hefur komið okkur nokkuð á óvart hversu margar heimsóknir síðan fær. Teljarinn skráir fjölda aðila sem komið hafa á vefsvæðið og hversu oft hver aðili skoðar einstakar síður innan vefsvæðisins. Samtals hefur síðan verið skoðuð 4165 sinnum frá því 30 júlí 2004 frá 367 aðilum eins og sjá má hér að neðan. Accesses Total Visits 4165 Total Unique 367 Top 10 Visited Pages Myndagallerý 3201 76.85% Main Site 647 15.53% Gestabók 182 4.37% Bloggsíða 135 3.24% Total 4165 Eins og sést á tölunum þá er myndagallerý-ið að fá langflestu “”hittin”" en það er líka sú síða sem við höfum uppfært langoftast. Það má til gamans geta að í Myndagallerý-inu eru núna 31 albúm með samtals 731 myndum. Konni
[Mynd úr albúmi30]Nú erum við búin að setja inn myndir frá Menningarnótt sem var 21 ágúst sl. Eins og vanalega þá var ótrúlega skemmtileg stemming og gífurlega fjölmennt í bænum. Að þessu sinni vorum við ekki búin að kortleggja atburði og uppákomur heldur röltum bara um. Það er náttúrulega smá overhead að vera með barnavagn í þessarri mannþröng. Við fórum svo aftur síðar um kvöldið og horfðum á flugeldasýninguna en þurftum að hafa hraðan á við að koma okkur úr bænum til þess að sleppa við traffíkina, því núna getum við ekki lengur labbað heim úr miðbænum….. snökt, snökt Konni
Ég bara varð að setja þetta á forsíðuna, alveg frábær vísa sem Kiddi Afi samdi Synda skaltu Flóki minn, sundið hreysti eykur. En allur er það galdurinn, að verða ekki smeykur. Þegar sundið kanntu allt, bringu-, skrið-, og bakið. Á afa þínum æfa skalt, björgunarsundstakið.