Við byrjuðum með Flóka í ungbarnasundi 25.ágúst, mikið fannst okkur þetta nú gaman, já Konni sundgarpur og Flóki fiskur eins og þeir eru oft kallaðir fíluðu þetta í botn. Við meigum taka gesti með okkur svo áhugasammir vinir og ættingjar hafið samband ef þið viljið koma og sjá. Hann er nú reyndar ekki farinn að kafa neitt en það er skvett framan í hann.
Rakel
[Mynd úr albumi28]Flóki fékk graut í fyrsta sinn 19.ágúst . Honum fannst hann bara ágætur en var ansi krúttlegur þegar hann fékk fyrstu skeiðina upp í sig. Myndavélin var að sjálfsögðu tekin upp og skotið í gríð og erg. Kannski var hann bara að gretta sig út af flassinu en ekki grautnum
, eins og við höfum oft sagt að ef hann fær tourette þá skrifast það á okkur. Rakel
[Mynd úr Albúm 24]Fyrsti árlegi fjölskyldudagurinn var haldinn í Heiðmörkinni á Sunnudag. Þarna voru að hittast systkyni mömmu hennar Rakel, ásamt börnum og barnabörnum. Þegar við mættum á staðinn var fírað uppí grillinu, farið í leiki og kjaftað. Veðrið var ótrúlega gott þrátt fyrir að sólin léti lítið fara fyrir sér. Konni og Rakel
[Mynd úr albúm25]Famelían fór og kíkti á Gay Pride gönguna í miðbænum á laugardaginn. Við vorum sammála um að gangan hafi verið flottari heldur en undanfarin ár. Þetta voru reyndar ekki bestu aðstæður til að taka myndir ( mjög þungbúið ) en nokkrar heppnuðust ágætlega. Konni
við erum loksins búin að gefa okkur tíma til þess að endurbæta síðuna. Eins og sést er komið nýtt og vonandi flottara útlit á síðuna. Nú þurfum við bara að fara að setja inn eitthvað efni, annað en myndir. Endilega skrifið í gestabókina….. Konni og Rakel