Flóki 2 mánaða
Nú er drengurinn orðinn tveggja mánaða. Snemma beygist krókurinn og hann var mjög sáttur að horfa á fótbolta með pabba sínum þar sem Danir og Svíar gerðu 2-2 jafntefli og sendu Ítali heim.
blah blah blah
Nú er drengurinn orðinn tveggja mánaða. Snemma beygist krókurinn og hann var mjög sáttur að horfa á fótbolta með pabba sínum þar sem Danir og Svíar gerðu 2-2 jafntefli og sendu Ítali heim.
Núna er MyndaGallerýið loksins að komast í gang. Myndir úr nafnaveislu komnar inn!! Eftir mikla mæðu og tæknileg vandamál þá er myndagalleríið loksins að komast í virkni. Enn eru þó einhverjar hnökrar enn sem þarf að laga en þegar þeir verða úr sögunni þá munum við bæta inn heilum helling af myndum, (það er af nægu að taka).
Nafnaveislan sem haldin var í gær heppnaðist rosalega vel. Fjölmennt var í Þúfubarðinu og veðrið hefði ekki getað verið betra. Þegar gestirnir voru búnir að gæða sér á veitingum þá var öllum stefnt útí garð þar sem nafnið á frumburðinum var afhjúpað. Eftir mikla spennu var dulunni svipt af skiltinu og nafnið kom í ljós.. Flóki Kristján Hall Nafnið vakti mikla lukku og afi stráksins var ánægður með að fá nafna í fjölskylduna. Við viljum þakka öllum sem lögðu hönd á plóg við undirbúning og framkvæmd veislunnar, en þar komu stelpurnar sterkar inn. Konni og Rakel
Þann 20 júní 2004 var vefurinn settur í loftið í tilefni af nafnaveislu sem var haldin heima í Þúfubarði.