Archive for the 'GamliFloki' Category

Lau 11. Ágúst

August 12th, 2007 by webmaster

IMG_2295_LRVið byrjuðum daginn elsnmma, fórum saman á æfingu í Boot Camp og Flóki var á meðan hjá Hirti frænda sínum. Eftir æfinguna sóttum við svo báða strákana og fórum með þá á fjölskylduhátíð hjá Boot Camp, þar sem var fullt af veitingum, leiktækjum fyrir krakkana og körfuboltamót. Skemmtum okkur vel þar, en mikið getur verið erfitt að hafa hemil á tveimur krökkum í einu, pfúff, alveg spurning um að láta eitt duga :-) Fórum svo í bæinn og stilltum okkur upp fyrir Gay Pride gönguna. Ótrúlegur mannfjöldi og frábær ganga. Við vorum eiginleg alveg búin á því eftir göngumna en kíktum samt smá á Arnarhól til að hlusta á tónleikana. Kettirnir eru ekki enn komnir í sátt útí skúr og því orðið nokkuð tvísýnt um árangur. Greyin eru búin að vera þarna innilokuð í 5 daga og ég held að þau séu orðin hundfúl á þessu rugli. Gefum þessu smátíma í viðbót. Kveðja Konni og Rakel

Af Köttum og Krökkum

August 9th, 2007 by webmaster

IMG_1067Kynbótaræktunin útí skúr hefur ekkert verið að ganga neitt alltof vel. Hann Róbert má ekki koma nema í 2-3 metra fjarlægð frá Litlu en þá hvæsir hún og urrar eins og hún getur. Þetta er samt að smá koma, verður líklega gott eftir 2 daga, þ.e. að hann geti nálgast hana óáreiddur. Hins vegar er hann svo hræddur við hann Flóka að það er ótrúlegt. Hann hreinalega treður sér í öll skúmaskot til að komast hjá því að þurfa að hitta hann, Flóki fær því ekki að fara inn til að hitta hann fyrr en þetta er afstaðið, Róbert er líklega með nóg á sinni könnu. Skellti inn nokkrum myndum af Flóka síðan í Júlí. Stundum áttum við Rakel það til að sofa eilítið lengur en Flóki og einn morguninn ætlaði kappinn að hressa uppá útlitið og setja smá vax í hárið. Hann var ekki alveg með skammtastærðir á hreinu þannig hann lét bara nógu mikið til að vera viss ( tæmdi fuck… dolluna ). Svo vaktii hann okkur og kvartaði yfir því að hann klæjaði svo. Damn, við þurftum að þvo honum 20 sinnum um hausinn og það tók okkur um 2 tíma að ná þessu úr, hann var allavega með hreint hárið eftir þann þvott. ps. kvót dagsins er bókin er skrifuð af svo miklu cosmópólitísku mannviti – Sjón Kveðja Konni

Tengdasonurinn kominn í hús

August 7th, 2007 by webmaster

Nú er komið að því að Litla Kisa fái að kynnast móðurhlutverkinu. Í skúrinn er kominn þessi líka eðalfress með medalíur á alla kanta ( kannski að ýkja smá ). Þau munu svo dvelja þar saman næstu 4 – 7 daga og vonandi takast með þeim góð kynni. Eða með öðrum orðum, það er búið að pimpa köttinn. Tengdasonurinn tilvonandi er Blár Sómali ( loðið afbrigði Abyssíu ) og verðlaunaður í sínum flokki. Hann virðist vera nokkuð öruggur með sig og spígsporar um eins og hann eigi heiminn. Litla Kisan er ekki alveg að kaupa þessa ráðstöfun, hún hvæsir og gólar eins og hún getur í von um að geta hrakið prinsinn frá sér. Hér er smá lesning um þessa tegund http://www.Kynjakettir.is

Kveðja, Rakel og Konni

Halló halló

August 6th, 2007 by webmaster

IMG_0933Við getum hreinlega ekki verið þekkt fyrir að uppfæra ekki síðuna í heilt ár, það væri nú eiginlega skárra að loka henni, en við ætlum að gera heiðarlega tilraun til að halda henni á lífi og hér eru því fyrstu lífsmörk sl. 11 mánuði.

Það væri nú of langt mál að fara að telja upp það sem á daga okkur hefur drifið frá síðustu uppfærslu en við erum búin að vera í sumarfríi núna síðustu fjórar vikurnar og erum að klára það núna um verslunarmannahelgina. Fórum meðal annars inní Þórsmörk eina helgi. Erum búin að hafa það hrikalega gott en erum samt innst inni nokkuð fegin að vera að fara að vinna aftur. Koma smá reglu á lífið, vakna á eðlilegum tíma og jafnvel fara að mæta á æfingar!!!

Endilega krotið í gestabókina, ef einhver ennþá svo þolinmóður að koma hingað inn :) :)

Kveðja Konni

Réttað í Kjósinni

September 18th, 2006 by webmaster

IMG_5626acUm síðastliðna helgi fórum við í hina árlegu smalamennsku í Kjósina. Veðrið var eins og best var á kosið og allir léttir í lund. Nói og Brúskur ( hundurinn hans Þorgeirs ) voru samt ekkert alltof hressir og tóku því léttan snúning á túninu á Möðruvöllum sem endaði með því að Brúskur lá eftir tábrotin og með gataðan fót. Það var nú verra, því af þeim tveimur þá er hann mun betri smalahundur. Þeir sátu því báðir eftir heima, þeir Þorgeir og Brúskur með laskaðar lappir.

Ég fór hins vegar með þeim Sigga og Reynir inn í Trönudal þar sem við skiptum liði. Ég var sendur upp topp en þeir tóku hlíðarnar. Ég komst fljótlega að því maður er ekkert að yngjast. Á tímabili hélt ég að ég hausinn á mér myndi springa vegna hjartsláttar og lappirnar kikna undan mér, það kom sér vel að vera með göngustafi því það er afbragðs gott að halla sér fram á þá í stuttum pásum. Ekki rákumst við nú á margar skjátur en þeim var öllum skilað í réttirnar þar sem Flóki kom svo síðar og lagði þeim lífsreglurnar.

Kveðja Konni

Flóka gekk mjög vel í samræmdu prófunum

June 28th, 2006 by webmaster

IMG_2661acVið Konni erum mjög stolt af stóra stráknum okkar því honum gekk mjög vel í samræmduprófunum, en hann er ekki enn búin að velja sér framhaldsskóla. Hann langar fara svo út í eitt ár sem skiptinemi eftir fyrsta árið í menntó og mér finnst það góð hugmynd. Ég og Flóki erum því að vinna í því að sannfæra Konna um að það verði allt í lagi.

Með þessu framhaldi verður þetta seinnilega næsta frétt á Flókanum en það er samt nýtt albúm fyrir apríl komið inn.

Kveðja Rakel

Flóki er kominn í leikskólann

May 2nd, 2006 by webmaster

IMG_2278acNúna er Flóki byrjaður á leikskólanum Smáralundi sem er hér aðeins neðar í hverfinu. Hann var bara stutt í dag og ég og Rakel vorum með honum. Hann labbaði með mömmu sinni í skólann og að sjálfsögðu var hann með fríðan flokk af dýrum sér við hlið. Dýrin voru alveg með það á hreinu að hér væri um merkisdag að ræða og ætluðu aldeilis ekki af missa af þessum tímamótum, það mættu allir í skrúðgönguna, Nói, Rebbi, Litla og Svarti en hann er nú yfirleitt fjarri góðu gamni þegar farið er í gönguferðir.

Flóki fékk nú enn eitt sárið í andlitið nú um helgina, loksins þegar glóðuraugað var við það að hverfa. Það atvikaðist þannig að hann var komin uppí rúm og var sofnaður. Litla kisan hafði stokkið uppá skápinn sem er við endann á rúminu hans þegar hann fór í háttinn og Nói sofnaði með Flóka inní herberginu hans með rassinn hálfan undir rúminu. Allt í einu er mikið brambolt inní herberginu og Flóki rekur upp þetta líka skaðræðisóp og Nói rýkur útúr herberginu. Við hlaupum inn og þar var Flóki hágrátandi að tala um að Nói hefði meitt sig. Við vissum nú að það hefði ekki getað verið og héldum bara að Flóka hefði brugðið þegar Nói stóð upp og hrist rúmið hans. Við tókum samt Flóka fram til að hugga hann og sáum þá að hann var allur í blóði í kringum munninn. Það fyrsta sem okkur datt í hug var að hann hefði bitið í tunguna á sér en sáum fljótlega að hann var með smá skurð útfrá hægra munnvikinu. Eftir smá rannsóknarvinnu er okkar kenning sú að Litla kisan hafi hoppað fram af skápnum á handriðið á rúminu en misst jafnvægið og dottið ofan í rúmið. Þá er henni svo brugðið að hún spólaði af stað ( með neglurnar úti ) rispað Flóka og stokkið útúr rúminu á Nóa sem lá á gólfinu. Við þetta rýkur hann á fætur og hristir rúmið hans Flóka. Þar sem Flóki hefur líklega aldrei tekið eftir kettinum áleit hann sem svo að Nói væri sökudólgurinn. Skelltum á þetta sótthreinsandi og svo plástur og þá voru menn sáttir, ekki síst vegna þess að nú fékk hann að sofa í stóra rúminu .

Skruppum austur fyrir fjall á verkalýðsdaginn og heimsóttum þar Hönnu og Óliver í sumarbústaðnum þeirra. Eftir það renndum við svo í sveitina til Mariu Weiss og Berlioz þar sem hundarnir fengu að leika sér saman og Flóki fékk síðbúna afmælisgjöf.

Kveðja
Konni

Pabbaklúbbur

April 30th, 2006 by webmaster

IMG_2162acÍ dag fórum við Flóki á okkar fyrsta fund í pabbaklúbbnum. Þar hittast nokkrir pabbar á sunnudagsmorgnum með krakkana sína, gefa öndunum brauð og fara svo á kaffihús. Í þetta skiptið voru 3 krakkar á fundinum, Flóki, Salka og Grímur. Endurnar á Reykjarvíkurtjörn eru greinilega mjög vel aldnar því það var varla að þær nenntu að éta brauðið sem var hent í þær. Krakkarnir brugðu því á það ráð að borða bara brauðið sjálf og kunnu vel að meta. Eftir að brauðið kláraðist héldum við á SegaFredo og fengum kaffi og með því meðan krökkunum gafst færi á að hlaupa og leika sér.

Kveðja
Konni

Kúlan ógurlega

April 23rd, 2006 by webmaster

IMG_9925aalÍ dag vorum við Flóki í 2ja ára afmæli hjá Óliver vini okkar, sem er nú ekkert frásögu færandi nema að Flóki datt með höfuðið á stól og fékk stærstu kúlu sem ég hef nokkru sinni séð. Til að bæta gráu ofan á svart þá leið næstum yfir mig þegar ég sá kúluna. Eftir nokkrar mínútur þá varð ég að krjúpa yfir klósettið því ekki nóg með að það væri að líða yfir mig heldur var ég kominn með æluna upp í háls. Ég varð föl eins og lík og hvít og köld á vörunum brrr. Ég þakka fyrir að ég var ekki ein með hann því þetta voru ekkert smá góð viðbrögð eða hitt þó heldur. Sem betur fer þá var Flóki hættur að gráta þegar ég þurfti að láta mig hverfa til að faðma klósettið. Ég sem hélt að ég væri nú frekar hörð af mér, en greinilega ekki þegar það kemur að Flóka litla. Á myndunum er kúlan búin að hjaðna svolítið og dreifast og svo líta svona hlutir alltaf miklu verr út live en á mynd, þessi kúla er allavega rosaleg.

Kveðja
Rakel kveif

Flóki 2ja ára – Til Hamingju

April 22nd, 2006 by webmaster

IMG_1135Í dag 22. apríl er Flóki Kristján 2ja ára. Hann er gríðarlega spenntur yfir öllum pökkunum og kökunum sem hann á von á í tilefni dagsins.

Hér getið þið svo séð hvað strákurinn hefur breyst á einu ári.

TIL HAMINGJU HAMINGJU HAMINGJU

Kveðja
Mamma og pabbi